المحتوى المقدم من Sverrir Geirdal. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Sverrir Geirdal أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
Player FM - تطبيق بودكاست انتقل إلى وضع عدم الاتصال باستخدام تطبيق Player FM !
Artificial intelligence is evolving at an unprecedented pace—what does that mean for the future of technology, venture capital, business, and even our understanding of ourselves? Award-winning journalist and writer Anil Ananthaswamy joins us for our latest episode to discuss his latest book Why Machines Learn: The Elegant Math Behind Modern AI . Anil helps us explore the journey and many breakthroughs that have propelled machine learning from simple perceptrons to the sophisticated algorithms shaping today’s AI revolution, powering GPT and other models. The discussion aims to demystify some of the underlying mathematical concepts that power modern machine learning, to help everyone grasp this technology impacting our lives–even if your last math class was in high school. Anil walks us through the power of scaling laws, the shift from training to inference optimization, and the debate among AI’s pioneers about the road to AGI—should we be concerned, or are we still missing key pieces of the puzzle? The conversation also delves into AI’s philosophical implications—could understanding how machines learn help us better understand ourselves? And what challenges remain before AI systems can truly operate with agency? If you enjoy this episode, please subscribe and leave us a review on your favorite podcast platform. Sign up for our newsletter at techsurgepodcast.com for exclusive insights and updates on upcoming TechSurge Live Summits. Links: Read Why Machines Learn, Anil’s latest book on the math behind AI https://www.amazon.com/Why-Machines-Learn-Elegant-Behind/dp/0593185749 Learn more about Anil Ananthaswamy’s work and writing https://anilananthaswamy.com/ Watch Anil Ananthaswamy’s TED Talk on AI and intelligence https://www.ted.com/speakers/anil_ananthaswamy Discover the MIT Knight Science Journalism Fellowship that shaped Anil’s AI research https://ksj.mit.edu/ Understand the Perceptron, the foundation of neural networks https://en.wikipedia.org/wiki/Perceptron Read about the Perceptron Convergence Theorem and its significance https://www.nature.com/articles/323533a0…
المحتوى المقدم من Sverrir Geirdal. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Sverrir Geirdal أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
المحتوى المقدم من Sverrir Geirdal. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Sverrir Geirdal أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is
Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum! Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024. Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin. Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyrði og áherslur sem þar liggja að baki. Kynnumst Eyvöru sem er NCC (National cooperation Center) í netöryggi á Íslandi og hluti af neti slíkra setra í Evrópu. Ákaflega fróðlegur þáttur um það sem er að gerast í netöryggismálum á Íslandi og hvernig Evrópa hyggst bæta stöðu sína í málaflokknum. Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is…
Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova sest með okkur og ræðir stöðuna á fjarskiptamarkaði með tilliti til þráðlausra tenginga. Hvað er 5,5G og af hverju eru ekki fundin betri nöfn á þráðlausum stöðlum og hvað eigum við að gera með tífalldan hraða? Verður sett þjónustustig á netið? Munum við þurfa að borga meira fyrir meiri hraða og minna fyrir lakari gæði? Þurfum við ljósleiðara? Þróunin er að opna á ýmis nýsköpunartækifæri til dæmis þráðlausar beinar útsendingar af viðburðum. Sjá dæmi hér: https://www.ericsson.com/en/press-releases/3/2024/ericsson-3-denmark-tv-2-and-sony-kick-off-new-era-of-live-sports-broadcasting Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is…
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun. Það er eina leiðin framávið. Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur. Hvernig kerfið þarf á hjálp að halda til að kynna og innleiða breytingar. Svo förum við að sjálfsögðu yfir Heilsutækniklasann og lausnamótið sem er framundan. Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is…
Gervigreindin á hug okkar allann. Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið! Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina? Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru. Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja, eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin sem mynda sambandið.. Fyrir hverja er regluverkið? Hvað er verið að tryggja/vernda með því? Hvað verður bannað og hvað má? Hver ákveður og hver verða viðurlögin? Af hverju eru ekki til reglur in Internetið? Um samfélagsmiðlana? Hvað höfum við lært? Þetta og allskonar meira í þætti 27! Hlustiði! www.audna.is - www.edih.is…
Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind, stafræna nýsköpun undir hatti EDIH. Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði. Er gervigreind mannleg greind? Ef ekki er henni þá treystandi, út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind? Er gervigreind annarskonar greind, sem hefur kosti umfram mannlega greind, t.d. hraða og aðgang að ógrynni upplýsinga og er þá hrein viðbót við mannlega greind? Þurfum við regluverk um gervigreind? Við þurftum ekkert regluverk um Internetið á sínum tíma. Eða var það kannski feill, hefðum við einmitt átt að setja reglur um Internetið. Hefðum við þá getað afstýrt allskonar óværu sem á okkur herjar núna, eins og falsfréttum? Óæskileg áhrif samfélagsmiðla og svo framvegis. Mjög fróðleg og skemmtileg umræða um eitt stærsta álitamál samtímans – Gervigreindina! Góða skemmtun www.audna.is - www.edih.is…
Róbert Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúar.ses fræðir okkur um gervigreind. Umfjöllun þessa þáttar er í anda EDIH, eða Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar - Hvað er gervigreind? Forrit með töfradufti? Hvaðan koma töfrarnir? En gögnin eru þau góð og hver ákveður og stjórnar? Mættum með 5 verkefni daglegs lífs sem við sjáum fyrir okkur að gervigreind gæti hjálpað okkur með. Missum okkur svo í restina yfir fréttum vikunnar um að Íslenska verði annað tungumál ChatGPT. Ótrúlegar fréttir og frábærar! Góða skemmtun www.audna.is - www.edih.is…
Framtíðin mætti í settið til að ræða tónlistarsköpun með gervigreind. Þórhallur Magnússon prófessor í framtíðartónlist við tónlistadeild Sussex háskólans og rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mætir og ræðir um gervigreind, sköpun og tónlist. 24. þáttur Auðvarpsins fjallar um mál málanna í dag. Hvað er gervigreind? Hvað er tónlist? Hvernig lýtur næsta hljóðfæri út? Hvernig nýtist gervigreindin í tónlistarsköpun? Þórhallur er hafsjór fróðleiks um gervigreind, hljóðfæri og sköpun. Mjög áhrifaríkt starf og rannsóknir sem Þórhallur er í forsvari fyrir. Þórhallur forritaði upphafsstef Auðvarpsins. Í þættinum leggjum við drög að næsta stefi. Fylgist með! Við minnumst á Daisy Daisy með Hal 9000 í 2001 Space Odyssey – Hér er linkur á þá snilld: https://youtu.be/E7WQ1tdxSqI Góða skemmtun www.audna.is - www.edih.is…
Háskólinn í Reykjavík og nýsköpunin á afmælisdegi Auðnu! Í 23. þætti Auðvarpsins hittum við fyrir rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnhildi Helgadóttur. Við ræðum Nýsköpun í háskólastarfi, erindi háskólanna í síbreytilegu samfélagi nútímans. Hvernig við ýtum undir meiri og skarpari nýsköpun innan úr vísindastarfinu. Hvernig standa háskólarnir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og hvernig kennum við fólkinu okkar að það sé þroskandi að hnjóta, af því lærum við mest! En við byrjum að sjálfsögðu á hundunum okkar og hversu vel þeir eru uppaldir! Góða skemmtun www.audna.is - www.edih.is…
Nýsköpunarsjóður er brúin yfir og vinin í dauðadalnum! Í 22. þætti Auðvarpsins förum við yfir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi, séð frá sjónarhóli Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári! Framkvæmdastjóri sjóðsins, Hrönn Greipsdóttir er gestur þáttarins. Við byrjum samt á allt öðru, við byrjum á hótel Sögu sem við söknum, um leið og við fögnum nýju hlutverki hússins sem hluti af háskólasamfélaginu í Vatnsmýrinni. Hlutverk sjóðsins í umhverfinu er að finna og bregðast við markaðsbrestum, ekki að vera í samkeppni við aðrar fjármögnunarleiðir. Það er markaðsbrestur í fjármögnun vísindalegrar nýsköpunar, sérstaklega á sviðum þar sem þekking fjárfesta er af skornum skammti. Í því samhengi ræðum við möguleika á stofnun „Proof of Concept“ sjóðs og hlutverk Nýsköpunarsjóðs í því samhengi. Sjóðurinn er sígrænn sem er áskorun í sveiflukenndu umhverfi en um leið nauðsynlegur valkostur. Allir hafa aðgang að sjóðnum og geta sótt um og kynnt sínar hugmyndir. Sjóðurinn hefur komið að um 200 fyrirtækjum á síðustu 25 árum, fær 100 til 150 erindi á ári og fjárfestir í 2 til 3. Endum svo á möguleikum til gistingar á svítunni á Hotel Holti. Skemmtileg stund með Hrönn sem hefur frá mörgu skemmtilegu að segja um sjóðinn í fortíð, nútíð og framtíð. www.audna.is - www.edih.is…
Vorum á jaðrinum en erum núna í miðju hringiðunnar! Jón Atli Benediktsson Vísindamaður, Professor og Rektor Háskóla Íslands er gestur 21. þáttar Auðvarpsins. Við förum yfir ferilinn, upphafið og ástríðuna sem fylgir því að vinna að skemmtilegum verkefnum með skemmtilegu fólki, bæði innanlands og utan. Jón Atli fer yfir alþjóðlegt samstarf sem HÍ er aðili að og leiðtogahlutverk okkar litla Háskóla. Mikil tækifæri eru fólgin í frekara samstarfi háskóla á Íslandi, þar sem verkefnið er að ryðja hindrunum úr vegi og skapa tækifæri og umhverfi þar sem fólk og þekking blómstrar. Við förum yfir nýsköpunaráherslur Háskólans og hvernig Auðna getur orðið að liði. Mikilvægi fræðslu og miðlunar reynslu og þekkingar. Miklar breytingar til góðs hafa átt sér stað í Íslenska þekkingarumhverfinu á síðustu áratugum. Við Íslendingar eigum erindi og getum stuðlað að þróun lausna sem bæta allra hag. Ekkert viðtal við Jón Atla er viðtal við Jón Atla án Fall og pönksins. Afskaplega skemmtilegt að heyra hve mikil áhrif tónlist hefur á andann og tilfinningalíf rektorsins. Rúsínan í pylsuendanum er svo frábærlega skemmtileg saga um tilurð frægs viðtals Jóns Atla og Kolbeins Árnasonar við meistara Frank Zappa, sem sannanlega stundaði nýsköpun í tónlistarsköpun sinni. These days með Joy Division: https://open.spotify.com/track/1208J1WMoVXWdyfEgGM8OT?si=59efb0bdaa374eeb Viðtal Jóns Atla og Kolbeins við meistara Frank Zappa frá 1992: https://soundcloud.com/j-n-atli-benediktsson/sets/frank-zappa-interview-in-1992 www.audna.is - www.edih.is…
Miðstöð snjallvæðingar stofnuð á Íslandi með 300 milljón kr. framlagi frá EU 20. þáttur Auðvarpsins fjallar um Miðstöð snjallvæðingar. Til að ræða Miðstöðina, þýðingu hennar og hlutverk koma Theodór Gíslason Tæknistjóri og einn stofnenda Syndis og Helga Waage Tæknistjóri og einn stofnenda Mobilitus í þáttinn. Við förum um víðan völl í umræðum um gervigreind, öryggismál, þýðingu Íslenskunnar fyrir snjallvæðinguna, menntun á mjög breiðum grunni, gagnatengingar og allskonar skemmtilegt. Við ræðum fjórar meginstoðir Miðstöðvar snjallvæðingar og hvernig þær geta haft áhrif og skapað tækifæri hér á landi. Mikilvægi samvinnu við Evrópulönd og hvað Ísland getur boðið meginlandinu, t.d. í formi aðstöðu til prófana. www.audna.is - www.edih.is…
Nú eru það stóru málin, tekið upp á sjötta degi innrásar Rússa inn í Úkraínu sem hittir á sjálfan Sprengidaginn. 19. þáttur Auðvarpsins er helgaður tölvuöryggismálum. Í þáttinn kemur einn helsti öryggissérfræðingur landsins, sem vill sjálfur kalla sig atvinnuhakkara; Theodór Gíslason Tæknistjóra og einn stofnenda Syndis. Við kynnumst Theodor aðeins og fræðumst um ástæður þess að hann varð og er hakkari. Þar hjálpaði alvarlegt slys við Hagaskólann árið 1994, þar sem hann lenti undir strætó! Við ræðum stöðu Íslands í tölvuöryggismálum og af hverju við flokkumst sem þriðja heimsland á öryggissviðinu. Hvers ber að varast og af hverju við höfum ekki lent í alvarlegri árás, þar sem við höfum í raun sloppið ótrúlega vel… hingað til. Hann sér fyrir sér að með stofnun EDIH skapist tækifæri til að breyta menningu okkar m.t.t. tölvuöryggis og að það sé tækifæri til að staðsetja miðstöð hakkara á Íslandi. Þar sem við getum stofnað og starfrækt miðstöð í tölvuöryggismálum sem væri aðlaðandi fyrir helstu hakkara heimsins. Hann lýsir skoðun sinni á menntakerfinu og hvað þarf að bæta þar. Svo förum við yfir stríðið í Úkraínu og hvers ber að vænta á sviði nethernaðar. www.audna.is - www.edih.is…
Fersk úr atkvæðagreiðslu, þar sem stofnun nýs nýsköpunarráðuneytis; Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var samþykkt, kemur ráðherrann til okkar í Auðvarpið og ræðir sína sýn á málaflokkinn. Í 18 og jafnframt fyrsta þátt endurreisnarársins 2022 kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar til okkar í Auðvarpið og fræðir okkur um hvernig pólitísk nýsköpun fer fram. Hvernig hún vill spila sóknarleik við nýsköpun samfélagsins. Að ráðuneytið eigi að markast af því að vera stofnað árið 2022, hvernig það sjáist á uppsetningu þess og skipulagi að það sé komið til að hrista upp í hlutunum, brjóta niður múra á milli fagsviða og brjóta niður múra á milli menntunar og nýsköpunar. Verkefnadrifið ráðuneyti í ætt við skipulag Google og annara þekkingarfyrirtækja. Sveigjanlegt ráðuneyti sem getur tekist á við og nýtt tækifærin okkur öllum til hagsbóta. Hún er hrifin af stafvæðingu og sér hana sem mikið tækifæri í framhaldinu. Þess vegna eigi fjarskipti og tækni samleið með nýsköpuninni undir ráðuneytinu. Við förum yfir litla fugla og stóra fugla, byr undir báða vængi og hvað hún var að gera í París í enda janúar og hvernig sú ferð gæti haft áhrif á nýsköpunarumhverfið á Íslandi. Hún boðar breytingar á fjármögnunar líkönum háskólanna, þar sem litið verður til nágrannalandanna og nauðsynlegra hvata til að auka gæði menntunar og tengingar hennar við þarfir samfélags framtíðarinnar. Í restina deilir hún með okkur sýn sinni á stöðu Íslands eftir 30 ár. Framtíðin er svo sannanlega björt! Stórfróðlegt og skemmtilegt. www.audna.is - www.edih.is…
Táknmynd 17. Þáttar er búin til af gervigreind. Þar sem Dr. Hafsteinn viðmælandi þáttarins stjórnar ferðinni og er þá listamaðurinn, eða hvað? (sjá nánar neðst í textanum) 17. og jafnframt síðasti þáttur ársins 2021 er helgaður gervigreind og listinni. Við ræðum tengingu gervigreindar, vitvéla, ofurtölva og listaverka! Við komumst að því hvort hægt er að búa til listaverk með hjálp tölva með aðferðum gervigreindarinnar. Dr. Hafsteinn Einarsson kemur til okkar og fer yfir rannsóknir sínar og vinnu á sviði listsköpunar með gervigreind. Við kynnumst manninum Hafsteini, hvernig hann fetaði slóðina að listsköpun og annarri hagnýtingu gervigreindarinnar. Frá dýratilraunum, þar sem mýs voru settar í sýndarheim og undir ljóssmásjá. Hafsteinn rýndi í taugaboð heilans um leið og músin hljóp um á boltahjóli, allsendis óupplýst hvað var í raun að gerast, þ.e. músin. Allt til að öðlast þekkingu á heilaboðum músarinnar. Hafsteinn útskýrir fyrir okkur muninn á virðisauka í bankaheimum og í hinum akademíska heimi ásamt að kynna okkur fyrir aðferðum gervigreindar er kemur að listsköpun. Við gerum tilraun til að útbúa táknmynd fyrir Auðvarpið með aðferðum Hafsteins og er niðurstaða þeirrar tilraunar notuð sem táknmynd þessa þáttar! Gleðilegt ár og hafið heila þökk fyrir samfylgdina á árinu 2021 Nánar um táknmyndina: Eftirfarandi skipun var send inn í töfravélina: „A creative logo for a podcast on innovation. The logo features glaciers, aurora borealis and value creation“ Valin mynd var númer 145 í röðinni af hátt í 300 myndum sem búnar voru til, hverri annarri áhugaverðri… www.audna.is - www.edih.is…
16. þáttur er helgaður, já þið giskuðu rétt, hann er helgaður hugverkarétti. Í þessum þætti leggjum við áherslu á fólkið, á launþega og spjöllum um samfélag framtíðarinnar sem gæti verið samfélag hugverksins. Formaður BHM Friðrik Jónsson og formaður Samtaka Iðnaðarins Árni Sigurjónsson skrifuðu saman grein um hugverkaiðnaðinn. Þar sáu þeir tveir herramenn marga snerti fleti á milli launþega og atvinnurekenda er varðar uppbyggingu og hönnun á samfélagi byggt á hugverkum. Friðrik er viðmælandinn í þessum þætti, þar sem við fjöllum um gildi hugverkarétts og áhrif á líf launamannsins. Hvaða áskoranir og tækifæri felast í hugverkarétti? Hvers ber að varast og hvaða viðhorf eru ríkjandi. Hvernig teymisvinna og samtal er affærasælast til árangurs? Þó að leiðtogar launþega og atvinnurekenda geti á stundum tekist á um ýmis mál þá er líka hægt að ræða saman um það sem sameinar. Uppbygging hugverkaiðnaðar á Íslandi er sameiginlegt hagsmunamál beggja. Við ræðum um höfundarétt, hversu flókinn hann getur verið. Hvernig stjórnsýslan þarf að aðlagast nýjum tímum og svara þannig kalli samfélagsins til þverfaglegrar vinnu og samstarfs. Því aðeins þannig tökumst við á við verkefni nútímans og framtíðarinnar, með samvinnu! Við minnumst á Terminator, vitvélar, gervigreind, Purrk Pillnik og að þora, treysta og gera! Hlustum og lærum, skiljum og hlægjum! www.audna.is - www.edih.is…
مرحبًا بك في مشغل أف ام!
يقوم برنامج مشغل أف أم بمسح الويب للحصول على بودكاست عالية الجودة لتستمتع بها الآن. إنه أفضل تطبيق بودكاست ويعمل على أجهزة اندرويد والأيفون والويب. قم بالتسجيل لمزامنة الاشتراكات عبر الأجهزة.