المحتوى المقدم من Guðmundur Hörður. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Guðmundur Hörður أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
Player FM - تطبيق بودكاست انتقل إلى وضع عدم الاتصال باستخدام تطبيق Player FM !
المحتوى المقدم من Guðmundur Hörður. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Guðmundur Hörður أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
المحتوى المقدم من Guðmundur Hörður. يتم تحميل جميع محتويات البودكاست بما في ذلك الحلقات والرسومات وأوصاف البودكاست وتقديمها مباشرة بواسطة Guðmundur Hörður أو شريك منصة البودكاست الخاص بهم. إذا كنت تعتقد أن شخصًا ما يستخدم عملك المحمي بحقوق الطبع والنشر دون إذنك، فيمكنك اتباع العملية الموضحة هنا https://ar.player.fm/legal.
Íslandshreyfingin var frjálslyndur umhverfisverndarflokkur sem var stofnaður í byrjun árs 2007 og bauð fram í Alþingiskosningum 12. maí það sama ár. Skoðanakannanir bentu til þess í fyrstu að flokkurinn gæti fengið um 5% fylgi og þrjá þingmenn, en þegar upp var staðið hlaut hann rúmlega 3% fylgi og engan þingmann. Mig langaði til að rifja upp sögu þessa framboðs, tilkomu þess og örlög, og settist þess vegna niður með þeim Ástu Þorleifsdóttur og Jakobi Frímanni Magnússyni, en þau voru í hópi stofnenda flokksins og leiddu lista flokksins, Ásta í Suðurkjördæmi og Jakob í Suðvesturkjördæmi.…
Björg Eva Erlendsdóttir er nýr framkvæmdastjóri Landverndar og ég settist niður með henni til að ræða náttúruverndina, stöðu náttúruverndarhreyfingarinnar, hálendisþjóðgarð, ríkisstjórnarsamstarfið og áróðursherferðina um orkuskort og græn orkuskipti.
Það eru sextán ár liðin síðan að Hafnfirðingar efndu til sögulegrar íbúakosningar um stækkun álversins í Straumsvík, en þar tókst fámennum hópi sjálfboðaliða að bera sigurðorð af Alcan, vellauðugu kanadísku alþjóðfyrirtæki. Meðal þeirra sem tóku þátt í þessum slag voru þau Valgerður Halldórsdóttir og Pétur Óskarsson, en þau voru í forystu Hafnfirðinga sem börðust undir merkjum félagsins Sól í Straumi - gegn því að álverið fengi heimild til stækkunar. Ég byrjaði á því að spyrja þau Valgerði og Pétur hvað dró þau að málstaðnum.…
Í alþingiskosningum 1927 urðu tveir menn uppvísir að atkvæðafölsunum í máli sem hefur verið nefnt Hnífsdalsmálið, eina kosningasvindlinu hér á landi sem hefur komið inn á borð kjörbréfanefndar Alþingis, Hæstaréttar og Scotland Yard. Ég rakti þessa sögu í pistli sem hægt er að lesa á gudmundurhordur.medium.com , en hér ætla ég að fylgja pistlinum eftir með viðtali við Sigurð Pétursson sagnfræðing, en hann hefur skrifað mikið um vestfirska verkalýðssögu og þar á meðal um Hnífsdalsmálið.…
Umhverfisráðherra hefur lagt fram stjórnarfrumvarp á Alþingi um hálendisþjóðgarð. Viðbrögð við frumvarpinu hafa vakið furðu, sér í lagi margir fyrirvarar samstarfsflokka Vinstri Grænna í ríkisstjórn, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Af þessu tilefni ræddi ég við Auði Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, en náttúruverndarhreyfingin hefur fjölmargt við hálendisfrumvarpið að athuga þó að það hafi ekki farið eins hátt í fjölmiðlum og óánægja sveitarstjórnarmanna.…
Stjórnarskrárfélagið safnar nú undirskriftum almennings við þá kröfu að Alþingi virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012 og lögfesti nýju stjórnarskrána. Ríkisstjórn Vinstri-grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur ekki viljað heyra á þetta minnst og hefur boðað eigin stjórnarskrártillögur. Flokkarinar virðast að vísu ekki ná samstöðu um þessar tillögur og nú er margt sem bendir til að við förum í gegnum enn eitt kjörtímabilið þar sem stjórnarskráin tekur engum breytingum. Undirskriftasöfnun stjórnarskrárfélagsins lýkur mánudaginn 19. október og af því tilefni sló ég á þráðinn til Katrínar Oddsdóttur, eins af forsvarsmönnum Stjórnarskrárfélagsins, og óskaði henni til hamingju með árangurinn, en þegar við ræddum saman voru undirskriftirnar 27494, en eru nú tveimur dögum seinna 28.526. Það er líklega nýtt met innan þess undirskriftakerfis sem rekið er á vegum stjórnvalda á island.is.…
Viðtal við Sævar Finnbogason, doktorsnema í heimspeki sem leggur stund á lýðræðisrannsóknir, stjórnarmann í Öldu lýðræðisfélagi og einn af þeim sem komu að skipulagningu og úrvinnslu rökræðufundar stjórnvalda um breytingar á stjórnarskrá síðastliðið haust. Hann varar við afleiðingum þess að stjórnvöld hunsi endurtekið niðurstöður lýðræðislegs samráðs við almenning, það muni grafa undan trausti á slíkum aðferðum og leiða til þess að fólk sjái ekki ástæðu til að verja tíma sínum í slíkt samráð.…
Hlaðvarpið að þessu sinni er viðtal sem ég átti við Þorstein Úlfar Björnsson, en hann hefur skrifað bækur um sögu vímuefnanotkunar og það sem hann kallar fáránleika fíknistríðsins. Þá hefur hann nýverið birt nokkrar greinar um sama efni á Kjarnanum. Við settumst niður og ræddum um frjálslyndari viðhorf til kannabisneyslu, aukinn skilning á læknandi áhrifum hugvíkkandi efna og cbd-olíu, áhrif nýrra laga um neyslurými og reynslu Þorsteins af neyslu sveppa sem hann segir að hafi hjálpað sér að vinna úr erfiðum tilfinningum. Hér má nálgast bækur Þorsteins .…
Viðtal sem ég átti við Andrés Inga Jónsson, þingmann utan flokka, en hann hefur setið á þingi fyrir Vinstri Græna frá 2016 en sagði sig úr þingflokknum fyrir hálfu ári síðan. Við ræddum um það hvernig sé að vera þingmaður án flokks, um stjórnarmyndunina 2017, dramatíska flokkráðs- og þingfundi, stjórnarskrána, lýðræðismálin, umhverfismálin og framtíð Andrésar í stjórnmálum. Síðan svaraði hann einnig nokkrum spurningum af twitter og facebook, m.a. um smekk á tónlist, bjór og sósum.…
Okkur sem þykja stjórnmálin yfirleitt full værðarleg hér á landi söknum Birgittu Jónsdóttur af pólitíska sviðinu – pólitísku eldflauginni eins og einn vinur hennar kallaði hana nýverið. Ég sló því á þráðinn til Birgittu og ræddi við hana stöðuna innan Pírata – en fyrst ræddum við m.a. um málskotsréttinn, handahófsvalda almenningsdeild Alþingis, friðhelgi einkalífsins, kínverska eftirlitssamfélagið, óvandvirkni við innleiðingu Evrópusambandreglugerða, drauma stjórnskipan Elon Musk, vernd uppljóstrara, Julian Assange, forseta í felum og skoðanakannanir sem benda til þess að Miðflokkurinn sé að bæta við sig fylgi vegna andstöðunnar við þriðja orkupakkann.…
Í umræðunni um þriðja orkupakkann hef ég talsvert rekist á spurninguna – hvar eru náttúruverndarsinnarnir? Og þeir hafa vissulega ekki verið háværir í þessari umræðu. Þess vegna hitti ég náttúruverndar-goðsögnina Ómar Ragnarsson og ræddi við hann um málið.
Í þessum þætti fjalla ég um Neytendasamtökin – stöðu þeirra, fortíð og framtíð. Til þess að ræða þetta hef ég fengið tvo góða gesti, þau Pálmey Gísladóttur og Einar Bergmund, en þau hafa bæði gefið kost á sér til stjórnar Neytendasamtakanna, en kosningin fer fram um næstu helgi.
مرحبًا بك في مشغل أف ام!
يقوم برنامج مشغل أف أم بمسح الويب للحصول على بودكاست عالية الجودة لتستمتع بها الآن. إنه أفضل تطبيق بودكاست ويعمل على أجهزة اندرويد والأيفون والويب. قم بالتسجيل لمزامنة الاشتراكات عبر الأجهزة.